top of page

MARKVISS STJÓRNARSETA

Önnur þungamiðjan í þjónustu Markviss er stjórnarseta í fyrirtækjum. Við höfum setið í stjórnum – oft sem stjórnarformenn – í yfir 20 fyrirtækjum, innlendum sem erlendum, og erum því víða á heimavelli, þekkjum vel til, eða erum fljót að átta okkur á sérstöðu hvers fyrirtækis og umhverfi þess.

 

Á meðal viðskiptavina í þeim efnum eru fyrirtæki á borð við Odda hf., Þórsberg ehf., Flugkerfi hf., Tæknival hf. og FISKI Gourmet AS (Sviss), svo að fáein dæmi séu nefnd.

 

Markmið okkar er ávallt að laða fram það besta í fyrirtækinu og hámarka arðsemi og ásýnd þess.​

 

Með því að fela okkur að sitja í stjórn fyrirtækis, vill hluthafi stuðla að aukinni fagmennsku við stjórnarborðið, innleiða betri stjórnarhætti og nýta sér víðtæka reynslu okkar og þekkingu til hagsbóta fyrir fyrirtækið og í þágu eigenda þess. Í sumum tilfellum á við að leggja áherslu á tiltekna eigendastefnu einstakra hluthafa.

bottom of page